Fimmtudagskvöld á Þingvöllum 2011
Í sumar verða fimmtudagskvöldgöngur á sínum stað í dagskrá þjóðgarðsins á Þingvöllum og hefjast þær allar við fræðslumiðstöðina klukkan 20.00 á hverju fimmtudagskvöldi í júní og júlí.
Dagskráin er sem hér segir.
9. júní Herstöðin á Þingvöllum
Einar Á.E.Sæmundsen fræðslufulltrúi þjóðgarðsins fjallar um Þingvelli í síðari heimsstyrjöldinni. Hann rekur sögu bandaríska hermannsins Charlie Frame sem dvaldi á Þingvöllum í bækistöðinni Camp Cornell og fylgdi síðar eftir innrás bandamanna inn í Þýskaland.
16 júní Fornleifarannsóknin við Þingvallakirkju
Margrét H. Hallmundsdóttir fornleifafræðingur fjallar um niðurstöður fornleifauppgraftrar sem fór fram við Þingvallakirkju árið 2009 vegna 150 ára afmælis kirkjunnar.
23 júní Þjóðleiðir til Þingvalla
Sigurður G. Tómasson útvarpsmaður ræðir um þjóðleiðir til Þingvalla og möguleg tengsl þeirra við nýja sprungu í Kárastaðastíg.
30. júní Víkingaminjar á heimsminjaskrá
Agnes Stefánsdóttir fornleifafræðingur og verkefnisstjóri hjá Fornleifavernd ríkisins fjallar um raðtilnefningu víkingaminja á heimsminjaskrá UNESCO.
7. júlí Myndin af Þingvöllum
Einar Garibaldi myndlistarmaður og sýningarstjóri sýningarinnar Myndin af Þingvöllum í Listasafni Árnesinga ræðir um Þingvelli og áhrif þeirra á myndlist.
14.júlí Náttúruvernd og stjórnarskrá
Ómar Þ. Ragnarsson fjölmiðlamaður og skemmtikraftur fjallar um Þingvelli, náttúruvernd og stjórnarskrá.
21.júlí Ýmsar sagnir frá Þingvöllum
Valgarður Egilsson læknir, rithöfundur og leiðsögumaður fær sjálfdæmi um umræðuefni og rifjar upp ýmsar sagnir úr sögu Þingvalla frá þjóðveldisöld fram á síðustu öld.
28.júlí Sögur og sagnir á þjóðveldisöld
Magnús Jónsson sagnfræðingur fjallar um mismunandi Íslendingasögur og tengsl þeirra við Þingvelli
Þriðjudagskvöld í Þingvallakirkju 2011
Tónleikaröðin “ Þriðjudagskvöld í Þingvallakirkju “ hefur göngu sína n.k. þriðjudag 14. júní í fimmta sinn. Þessir klukkustundarlöngu tónleikar hafa mælst vel fyrir í fögru umhverfi þingstaðarins forna og oft þétt setinn bekkurinn í kirkjunni.
Kveikjan að tónleikunum er stofnun Minningarsjóðs Guðbjargar Einarsdóttur frá Kárastöðum til eflingar tónlistarstarfi við kirkjuna.
Á fyrstu tónleikunum koma fram þau Helga Aðlheiður Jónsdóttir, blokkflautuleikari og Þórarinn Sigurbergsson, gítarleikari. Þar verður barokktónlist í öndvegi.
Þær systur, Pálína og Margrét Árnadætur, leika dúó fyrir fiðlu og selló viku síðar, þ. 21. júní. Þar verða m.a. verk eftir Haydn og Beethoven á efnisskránni.
Kolbeinn Bjarnason, flautuleikari og Guðrún Óskarsdóttir, semballeikari bjóða upp á áhugaverða blöndu af gamalli og nýrri tónlist á þriðju tónleikunum þ. 28. júní.
Að lokum flytur miðaldasönghópurinn Voces Thules tóna aftan úr öldum þriðjudaginn 5. júlí.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:00. Aðgangur er ókeypis en tekið er við frjálsum framlögum í minningarsjóðinn við kirkjudyr.

