Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Dagskrá

Fjölmenni var í fyrstu fimmtudagskvöldgöngu sumarsins

6.6.2010 Dagskrá : Dagskrá sumarsins

Í sumar verður ýmislegt í boði í þjóðgarðinum á Þingvöllum.

Fyrst ber að nefna nýjar gönguferðir á þriðjudagskvöldum sem fjalla um náttúru Þingvallasvæðisins. Þar munu mismunandi fræðimenn fjalla um náttúru Þingvallasvæðisins og hefjast þær 8.júní.

Fimmtudagskvöldgöngurnar sívinsælu hefjast 10.júní og eru mörg spennandi erindi í sumar. Í Þingvallakirkju verða tónleikar fjögur þriðjudagskvöld frá 15.júní en tónleikarnir eru samvinnuverkefni Þingvallakirkju og Minningarsjóðs Guðbjargar Einarsdóttur frá Kárastöðum. Messað er í Þingvallakirkju hvern sunnudag kl. 14 frá miðjum júní til loka ágúst.

Á laugardögum eru gönguferðir í eyðibýlin Skógarkot og Hrauntún og alla virka daga kl. 10.00 og 15.00 er boðið upp á stuttar gönguferðir á ensku um þingstaðinn forna undir stjórn landvarða.

Aðgangur er ókeypis í dagskrá þjóðgarðsins og allir eru velkomnir og nánari upplýsingar um dagskrá er að finna hér neðar á síðunni.

Upplýsingar um gönguferðir á fimmtudagskvöldum 2010

 

Upplýsingar um gönguferðir á þriðjudagskvöldum 2010

 

Upplýsingar um tónleikaröð í Þingvallakirkju á þriðjudagskvöldum

 

Upplýsingar um eyðibýlagöngur og leiðsögn um þingstaðinn forna á ensku



Lesa meira
 

 

 
 

 

Hliðarval


 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica cmscms - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf