Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

2.6.2010

Tónleikaröð í Þingvallakirkju á þriðjudagskvöldum 2010

Tónleikaröðin Þriðjudagskvöld í Þingvallakirkju er samvinnuverkefni Þingvallakirkju og Minningarsjóðs Guðbjargar Einarsdóttur frá Kárastöðum. Umsjónarmaður með tónleikunum er Einar Jóhannesson klarinettuleikari. Þetta er fjórða starfsár tónleikaraðarinnar.

Tónleikarnir hefjast kl. 20 og standa í tæpa klukkustund. Aðgangur er ókeypis en tekið er við framlögum í Minningarsjóðinn við kirkjudyr.


Sumarið 2010 verða tónleikar og flytjendur sem hér segir:

15. 6. Laufey Sigurðardóttir, fiðla, og Elísabet Waage, harpa.

22. 6. Helga Þórarinsdóttir, lágfiðla, og Kristinn H. Árnason, gítar.

29. 6. Björn Davíð Kristjánsson og Kawal - flautukvartett hans.

6. 7.    Tréblásaratríó Peter Tompkins, Rúnars Vilbergssonar og Einars Jóhannessonar.

 

Tónleikagestum er bent á að leggja bifreiðum sínum á bílastæðinu við Flosagjá og ganga þaðan til kirkju.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval


 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica cmscms - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf