Dagskrá sumarsins
Í sumar verður ýmislegt í boði í þjóðgarðinum á Þingvöllum.
Fyrst ber að nefna nýjar gönguferðir á þriðjudagskvöldum sem fjalla um náttúru Þingvallasvæðisins. Þar munu mismunandi fræðimenn fjalla um náttúru Þingvallasvæðisins og hefjast þær 8.júní.
Fimmtudagskvöldgöngurnar sívinsælu hefjast 10.júní og eru mörg spennandi erindi í sumar. Í Þingvallakirkju verða tónleikar fjögur þriðjudagskvöld frá 15.júní en tónleikarnir eru samvinnuverkefni Þingvallakirkju og Minningarsjóðs Guðbjargar Einarsdóttur frá Kárastöðum. Messað er í Þingvallakirkju hvern sunnudag kl. 14 frá miðjum júní til loka ágúst.
Á laugardögum eru gönguferðir í eyðibýlin Skógarkot og Hrauntún og alla virka daga kl. 10.00 og 15.00 er boðið upp á stuttar gönguferðir á ensku um þingstaðinn forna undir stjórn landvarða.
Aðgangur er ókeypis í dagskrá þjóðgarðsins og allir eru velkomnir og nánari upplýsingar um dagskrá er að finna hér neðar á síðunni.

