
Sumarstarf í undirbúningi
Þrátt fyrir kulda og norðanátt undanfarna daga er undirbúningur fyrir sumarstarfið hafinn á Þingvöllum. Í sumar munu 10 landverðir starfa hjá þjóðgarðinum og eru þeir að koma til starfa um þessar mundir. Nú er unnið að því að setja saman dagskrá sumarsins en hægt verður að komast í skipulagðar gönguferðir alla daga í sumar. Alla virka daga verður farið um þingstaðinn forna þar sem fjallað verður um sögu og staðhætti en einnig kynntar fornleifarannsóknir sem standa yfir. Á fimmtudagskvöldum fáum við til leiks utanaðkomandi leiðsögumenn sem munu fjalla um hugðarefni sín. Verið er að ganga frá þeirri dagskrá um þessar mundir og verður hún kynnt undir lok mánaðarins. Á laugardögum verður farið í lengri gönguferðir um þingstaðinn, í Skógarkot, Hrauntún og með ströndu Þingvallavatns. Fræðslumiðstöð þjóðgarðsins er opin alla daga frá 9-5 en þar má kynnast sögu og náttúru Þingvalla með nýjustu margmiðlunartækni. Bókabúðin vinsæla í Þjónustumiðstöðinni á Leirum var opnuð 1.maí en þar er hægt að nálgast góðar erlendar bækur en einnig fá allar almennar upplýsingar um þjóðgarðinn hjá landvörðum.

