Áður óþekktar búðarústir fundnar
Könnunaruppgreftri á Þingvöllum sumarið 2002 er nú að mestu lokið, en sérfræðingar í gjóskulagafræði og viðnámsrannsóknum verða að störfum næstu vikurnar til að afla frekari upplýsinga. Meðal þess sem kom í ljós á síðustu dögum uppgraftrarins að þessu sinni eru tvær áður óþekktar tóftir á eystri bakka Öxarár, rétt vestan við heimreiðina að Þingvallabænum.
Lesa meira
Uppgröftur hafinn í Njálsbúð
Syðsta búðin vestan megin á Öxarárbakka næst Valhöll hefur verið kölluð Njálsbúð síðan á 18. öld þegar menn fóru að velta fornri búðarskipan á Þingvöllum fyrir sér.
Lesa meira
Fleiri búðarústir finnast á Þingvöllum
Nú hefur komið í ljós að í Biskupsbúð sem hingað til hefur verið talin stærsta búðartóftin á Þingvöllum er ekki ein búð heldur margar. Þetta segir Adolf Friðriksson hjá Fornleifastofnun sem stjórnar fornleifauppgröftinum á Þingvöllum. Hann segir ennfremur að komið sé í ljós að svæðið við Biskupsbúð sé flóknara en það leit út fyrir í fyrstu.
Lesa meira
Grafið í Biskupabúð, skammt frá Þingvallakirkju
Biskupabúð er talin stærsta búðatóftin á Þingvöllum. Sigurður Vigfússon fornmenjavörður gróf hana út sumarið 1880 og taldist honum til að hún væri 31,5 x 7,5 metrar að utanmáli. Þústir á yfirborði Biskupshóla benda einnig til að sú mæling gæti verið nærri lagi.
Lesa meira


