Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Uppgröftur hafinn á Þingvöllum

3.6.2002

Uppgröftur er nú hafinn í suðvesturjaðri Þingvallatúns, þar sem heitir Miðmundatún. Er þetta fyrsta skrefið í þeirri umfangsmiklu fornleifarannsókn sem standa mun næstu árin. Í sumar fer fram forkönnun og verður einkum grafið á nokkrum stöðum þar sem vitað er að fornminjar hafa áður fundist. Þar á meðal er svæðið þar sem byrjað var að grafa í dag. Þar var grafið fyrir jarðstreng árið 1957 og kom þá öllum að óvörum í ljós tá-bagall eða húnn af biskupsstaf, sem talinn er merkasti fornleifafundur á Þingvöllum til þessa.
Ólíklegt er að brotna koparhandfangið sem kom í ljós í dag jafnist á við tá-bagalinn góða. Það fannst hins vegar á svipuðum slóðum og bagallinn, en fræðimenn grunar einmitt að á þessu svæði kunni fleiri merkar minjar að leynast undir yfirborðinu. Greinilegar mannivistarleifar sáust þarna á hálfs til eins metra dýpi árið 1957, en ekki var grafið frekar þá.

Það voru fornleifafræðingarnir Adolf Friðriksson, Gróa Másdóttir og Howell Magnús Roberts sem hófu uppgröftinn á Þingvöllum, en Adolf hefur yfirumsjón með fornleifafræðilegum þætti rannsóknarinnar. Gert er ráð fyrir að 7-8 manns vinni við uppgröftinn á næstu vikum. Sjá nánar um rannsóknina undir Fornleifar.

 
 



 
 

 


Hliðarval


www.thingvellir.is



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónarkerfivefumsjónarkerfi - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf