Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Rýnt í grjót og veggjaleifar

18.6.2003

Eftir tæplega þriggja vikna uppgröft eru fornleifafræðingar á Þingvöllum farnir að ráða í veggjaleifar og steina sem standa uppúr uppgreftrinum í Biskupabúð.

Eftir að grafið hefur verið niður á um 30-40 sentrimetra dýpi máHorft til Lögbergs sjá mikið af aðfluttu grjóti og veggjaleifum. Þar sem ekki hefur fundist mikið af munum er það sterk vísbending að þær rústir sem eru að koma í ljós tengist þinghaldinu. Nyrsti hluti uppgraftarsvæðisins afmarkast af skýrri og voldugri vegghleðslu sem greinilega snýr ytri hlið til norðurs.

Leifar af torfi hafa komið í ljós fyrir utan vegginn og því hefur hann verið mjög þykkur. Greina má aðra vegghleðslu neðar og til hliðar við þessa hleðslu. Innan við þennan vegg mynda nokkrir steinar útlínur sem geta gefið til kynna lítið rými og þar má sjá kolaskán í jarðveginum. Hefur það vakið upp spurningar um hvort það megi finna vísi að eldstæði.

Sunnan í uppgraftarsvæðinu hafa fornleifafræðingarnir komið niður á vegghleðslu sem vakið hefur forvitni þeirra. Hún er óvenjuleg að því leytinu að hún er bogadregin og um 80 sentrimetra breið og 60 sentimetra djúp. Fornleifafræðingarnir hafa ekki rekist veggjaleifar með þessu sniði eða byggingarlagi áður og því verið að velta því fyrir sér hvers eðlis hún. Ekki er hægt að tímasetja þessar veggjaleifar en þær virðast teygja sig inn undir óuppgrafið svæði.

 
 



 
 

 


Hliðarval


www.thingvellir.is



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónvefumsjón - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf