
Uppgröftur hafinn
Fornleifafræðingar Fornleifastofnunar Íslands hófu störf á Þingvöllum í byrjun vikunnar. Þeir verða á Þingvöllum við uppgröft og rannsóknir næstu 4 vikur.
Megin uppgröfturinn verður í Biskupshólum vestan Þingvallakirkju þar sem grafnir voru könnunarskurðir fyrir ári síðan. Í þeim komu í ljós athyglisverðar veggjaleifar sem verða kannaðar betur í uppgreftri sumarsins. Fyrsta verk fornleifafræðinganna var að fletta torfi ofan af öllu uppgraftrarsvæðinu í nyrsta hluta Biskupshóla. Þar hefur lengi verið talið að norður skammhlið stórrar búðar megi finna. Nú þegar hafa um 20 cm. af efstu jarðlögum verið fjarlægð og farið er að glitta í fyrstu steina og hleðslur. Engir munir hafa komið í ljós en örsmá postulínsbrot og beinaleifar hafa fundist.
Þrátt fyrir að megináherslan verði á Biskupahóla í uppgreftri sumarsins munu fornleifafræðingarnir grafa litla könnunarskurði á nokkrum öðrum stöðum. Líklegt er að þeir grafi vestan Öxarár við Hallinn en fornleifafræðingar hafa greint á loftmyndum torkennilegar hringlaga þústir innan um búðaleifar sem erfitt er að greina á jörðu niðri.
Fornleifafræðingarnir munu einnig líta út fyrir hinn þekkta þingstað og minjastað og munu grafa fáeina könnunarskurði í túninu sunnan og austan við Þingvallabæ. Þar sjást engar minjar á yfirborði en þar verður athugað hvort að túnið geti mögulega verið yngra en þingstaðurinn , þ.e.a.s hvort að þar leynist minjar sem hafi horfið undir tún. Leifar af mannvirki fundust í Miðmundatúni í fyrra sunnan við Þingvallabæ og því verða fleiri könnunarskurðir grafnir í túni bæjarins á nokkrum stöðum.
Hægt verður að kynna sér fornleifarannsóknir með daglegum gönguferðum alla virka daga klukkan 13.00, af merkingum á staðnum og á heimasíðu þjóðgarðsins þar sem miðlað er upplýsingum af vettvangi rannsóknarinnar

