
Torkennilegar hleðslur og skartgripur.
Eftir um tveggja vikna uppgröft hafa komið í ljós
fjölmargar veggjahleðslur í Biskupabúð sem jafnframt eru torkennilegar og nokkuð erfitt að ráða í. Líklegt má þó telja að í Biskupabúð séu leifar af fleiri en einni búð en veggjaleifar eru á mismunandi dýpi og liggja ekki reglulega. Tvær búðir virðast þó liggja samsíða og jafnvel tengjast búð sem liggur alveg fram á bakka Öxarár þar sem göngustígurinn er. Sérstaka athygli vekur skýr vegghleðsla sem að miklu leyti er ofan í mjóum skurði.Á
nokkrum stöðum hafa komið fram eldstæði af mismunandi stærðum með nokkuð af kolaleifum. Fáeinir munir hafa fundist, beinaleifar, járn, hluti af hníf, leirmunir og fallegur lítill skartgripur sem fannst í dag.
Erfitt er að geta til um aldur nælunnar en eftir á að greina og skoða nánar þá gripi sem finnast.
Í næstu viku stendur til að grafa meira í Miðmundatúni sunnan við Þingvallabæ. Þar eru leifar af stórri búð sem liggur undir skemmdum af völdum trjágróðurs sem þar var plantað um 1950.

