Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

9.5.2003

Sumarstarf í undirbúningi

Í sumar munu 10 landverðir vera störf í þjóðgarðinum og eru þeir að koma til starfa um þessar mundir. Verið er að setja saman dagskrá fyrir sumarið en hægt verður að komast í skipulagðar gönguferðir alla daga í sumar. Í sumar verður fjölþætt dagskrá í boði fyrir gesti þjóðgarðsins einsog undanfarin sumur. Alla virka daga verður hægt að fara um þingstaðinn forna þar sem fjallað verður sögu og staðhætti en einnig skoðaðar fornleifarannsóknir sem standa yfir. Á fimmtudagskvöldum fáum við til leiks utanaðkomandi leiðsögumenn sem munu fjalla um hugðarefni sín. Verið er að ganga frá þeirri dagskrá um þessar mundir og verður hún kynnt undir lok mánaðarins. Á laugardögum verður farið í lengri gönguferðir um þingstaðinn, í Skógarkot, Hrauntún og með ströngu Þingvallavatns. Fræðslumiðstöð þjóðgarðsins er opin alla daga frá 9-5 og þar má kynnast þar sögu og náttúru Þingvalla með nýjustu margmiðlunartækni. Bókabúðin vinsæla í Þjónustumiðstöðinni á Leirum var opnuð 1.maí en þar er hægt að nálgast góðar erlendar bækur og einnig fá upplýsingar hjá landvörðum.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf