Áður óþekktar búðarústir fundnar
Könnunaruppgreftri á Þingvöllum sumarið 2002 er nú að mestu lokið, en sérfræðingar í gjóskulagafræði og viðnámsrannsóknum verða að störfum næstu vikurnar til að afla frekari upplýsinga. Meðal þess sem kom í ljós á síðustu dögum uppgraftrarins að þessu sinni eru tvær áður óþekktar tóftir á eystri bakka Öxarár, rétt vestan við heimreiðina að Þingvallabænum. Adolf Friðriksson telur ósennilegt að þarna hafi verið útihús frá Þingvöllum. Líklega eru þetta því rústir af þingbúðum, en ekki eru kunnar neinar sagnir um búðir á nákvæmlega þessum stað. Ekki er hægt að segja til um aldur rústanna á þessu stigi. Hætt er við að Öxará hafi spillt þessum minjum nokkuð.
Í norðanrokinu í morgun var Bryndís G. Róbertsdóttir gjóskulagafræðingur að skoða jarðvegsnið í könnunarskurðum fornleifafræðinga í Biskupabúð. Rannsókn á gjóskulögum gegnir veigamiklu hlutverki við aldursgreiningu fornminja. Frumkönnun Bryndísar bendir til að í skurðunum sé m.a. að finna svokallaða landnámsgjósku frá árinu 870, en frekari rannsókna er þörf til að fá það staðfest. Landnámsgjóskan getur verið undir eða yfir fornum mannvirkjum, en einnig í torfi sem notað var í vegghleðslur á þjóðveldisöld.

