Bústaður biskupanna
Uppgröftur sumarsins í Biskupabúð er senn að enda að þessu sinni en fornleifafræðingar á vegum Fornleifastofnunar Íslands hafa verið síðastliðnar fjórar vikur að rannsaka gömlu búðarústir biskupanna.
Adolf Friðriksson, forstöðumaður Fornleifastofnunar Íslands segir að uppgröftur sumarsins hafi að mestu leyti staðfest það sem könnunarskurðir síðasta sumar sýndu að Biskupabúðin er stórt mannvirki, samsett úr nokkrum búðum. Hins vegar kom óvænt mannvirki í ljós sunnanmegin í uppgraftarsvæðinu sem er óvenjulegt að því leytinu til að rústirnar eru bogadregnar. Líklega er þetta mannvirki yngra en biskupabúðin sjálf en ekki er vitað í hvaða tilgangi búðin var notuð. Ekki hefur fundist mikið af gripum í þessari ókunnu búð og því líklegt að þetta séu ekki leifar af húsi, segir Adolf.
Enn er verið að vinna úr efstu lögum uppgraftarins og ýmislegt hefur fundist, svo sem byssukúlur, krítarpípa, sem notuð var fyrir tóbak frá 17 - 18 öld en ekkert sem getur gefið vísbendingar um aðbúnað fólks á þjóðveldisöld. Síðasti dagur fornleifafræðinganna í Biskupabúð er næstkomandi föstudag en Adolf segir að haldið verður eitthvað áfram að vinna að könnunarskurðum í Miðmundartúni sem er rétt sunnan við Þingvallakirkju.

