Kynning á fornleifarannsóknum
Alla virka daga verða gönguferðir um þingstaðinn forna þar sem áhersla er lögð á fornleifarannsóknir og sögu þingsins.
Gönguferðirnar verða á ensku klukkan 10.00 og 15.00 en á íslensku klukkan 13.00. Gönguferðirnar hefjast við Þingvallakirkju og enda við fræðslumiðstöðina og taka um 1 klst. Á sunnudögum er gengið um þingstaðinn forna klukkan 15.00 og fjallað um staðhætti og sögu þingsins.

