Grafið í Biskupabúð
Uppgraftrarsvæðið í Biskupabúð er rúmlega 10x10 metrar að stærð og eru um 7-8 fornleifafræðingar við uppgröft þar nú. Ekki hafa fundist neinir munir ennþá en eilítið af beinaleifum hafa komið í ljós. Í Biskupabúð er nú farið að sjást mikið af grjóti sem er greinilega aðflutt og má sjá móta fyrir skýrum veggjaleifum á nokkrum stöðum.
Við norðurenda búðarinnar má greina vegghleðslu ofan á annarri vegghleðslu. Mögulegt er að þar sé að koma í ljós að bygging hafi verið reist ofan á eldri byggingu. Á einum stað má sjá kolaflekki í moldinni sem mögulega gætu verið leifar af eldstæði þó of snemmt sé að segja um það. Ekki hafa greinst nein öskulög en landnámslagið kom fram í torfi í könnunaruppgreftri í fyrra sem er vísbending um að þarna gætu verið á ferð leifar frá því í kringum elleftu öld. Vitað eru um fleiri gjóskulög eru á svæðinu en þau bíða þess að fornleifafræðingarnir grafi niður á þau.

