Áður óþekkt tóft kemur í ljós
Sérfræðingar Fornleifastofnunar héldu í dag áfram athugunum sínum í Miðmundatúni. Innan um hávaxin birki- og reynitré sem þar voru eitt sinn gróðursett ráku þeir augun í óljósar þústir á jörðinni, sem þeim fannst ástæða til að kanna nánar. Í ljós kom allstór tóft, mjög ógreinileg fyrir óvön augu en sjáanleg engu að síður. Strax var grafin lítil hola á staðnum og staðfesti hún grun fornleifafræðinganna um að þarna væri rústir að finna.
Adolf Friðriksson, annar verkefnisstjóri rannsóknanna á Þingvöllum, sagði að þeir hefðu grafið þarna niður á vegghleðslu og það sem einhverntíma hefði án efa verið gólf. Því er ljóst að þarna er um gamalt mannvirki að ræða, en hversu gamalt skal á þessu stigi ósagt látið. Hins vegar er uppgötvun rústanna merkileg fyrir þær sakir, að ekki er vitað um neinar heimildir um þingmannabúðir eða önnur mannvirki á þessum stað.
Hávaxinn trjágróðurinn gerir fornleifafræðingunum erfitt um vik við frekari uppgröft, því gildar ræturnar smjúga þarna um allt og hafa að öllum líkindum spillt þeim minjum sem kunna að leynast undir yfirborðinu. Vonandi tekst þó skófluglöðum fræðimönnunum að svipta sverðinum af þessum tóftabrotum – og þar með hulunni af leyndardómi Miðmundatúns. Verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu

