Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

8.10.2003

Hljómburður mældur í Almannagjá.

Síðastliðinn laugardag urðu gestir á Þingvöllum varir við undarleg hljóð sem bárust frá Lögbergi.  Þar voru á ferð nokkrir nemendur og kennarar úr Tækniháskólanum í Eindhoven í Hollandi við mælingar á hljómburði í Almannagjá.  Hópur frá háskólanum er í námsferð á Íslandi þar sem þeir vinna að ýmsum verkefnum tengdum náminu.  Meðal annars munu þeir framkvæma mælingar á hljóðvist og einangrun torfhúsa í Árbæjarsafni og í Glaumbæ í Skagafirði. 

 Hluti hópsins kom síðastliðinn laugardag á Þingvöll til að gera mælingar á hljómburðinum í Almannagjá.  Mælingarnar fóru þannig fram að hljóðbylgja ómaði úrHátalarinn sérhönnuðum hátalara sem sendi hljóð í allar áttir.  Á ákveðnum stöðum í kringum hátalarann var komið fyrir hljóðnemum sem tengdir voru við fartölvur sem vistuðu hvernig hljóðbylgjan barst.  Úr þessum niðurstöðum verður hægt að gera útreikninga hvernig og hve langt hljóðið berst frá mismunandi stöðum á Lögbergi. 

 Nákvæm staðsetning Lögbergs hefur gefið tilefni til Hátalarinn á Lögbergiumræðna og ýmsar kenningar settar fram.  Á 19.öld var af mörgum talið að Lögberg hafi verið á Spönginni austan við Öxará en síðar komu fram þær hugmyndir sem í dag er taldar líklegastar að Lögberg hafi verið á bergstalli við austari hamravegginn eða inni í gjáni undir vestari hamraveggnum í Almannagjá. 

 Staðsetningar fyrir hátalarann voru valdar með tillitiUndir vestari hamraveggnum til þessara mismunandi hugmynda en hátalaranum var fyrst komið fyrir nokkrum metrum sunnan við fánastöngina og hljóðbylgjan mæld bæði inni í gjáni og í brekkunni fyrir neðan Lögberg.  Oft heyrist sú spurning hvort að lögsögumaðurinn hafi talað inn í gjána eða út yfir brekkuna fyrir neðan og því var ákveðið að mæla hljóðið í báðar áttir miðað við þessa staðsetningu.  Hátalaranum var einnig komið fyrir efst við vestari hamravegginn þar sem ýmsir telja að Lögberg hafi einnig verið og hljóðið þaðan mælt á nokkrum stöðum inni í gjáni.   Hópurinn að loknum mælingum.  Frá v. Marten Hornikx nemi, Berti van der Brook, Gemma Tegelears, og aðstoðarprófessorar Constant Hak og Heiko Marten.

Niðurstöður úr þessum mælingum verða tilbúnar þegar líður á haustið.     Starfsfólk þjóðgarðsins var hollendingunum til aðstoðar og fræddu þá um sögu staðarins.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf