Veggjahleðsla kominn í ljós
Fornleifauppgröfturinn er nú vel á veg kominn en uppgraftrarsvæðið er nú um 80 fermetrar að stærð. Um 20 cm hafa verið fjarlægðir af efsta laginu í Biskupabúð og fleiri veggjaleifar hafa komið í ljós. Voldugur veggur hefur komið í ljós vestan megin í búðinni meðfram göngustígnum en einnig má greina beinar veggjalínur innar. Lítið hefur fundist af munum en þó hafa fáein keramikbrot, brýni og beinaleifar komið í ljós.
Við uppgröftinn starfa um 11 fornleifafræðingar sem hafa aðstöðu á Hótel Valhöll meðan þeir eru við uppgröft á Þingvöllum.

