Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

22.6.2004

Börnin leita fornmuna á Þingvöllum

14 börn á aldrinum 6-12 ára komu ásamt foreldrum sínum í Fornleifaskóla barnanna í Prestakrók á Þingvöllum sunnudaginn 20.júní. Prestakrókur er við DrekkingarhylEldstadi og þar hafa landverðir reist búðarveggi að hætti fornmanna. Þar var forðum markaður þar sem verslað var með varning af ýmsu tæi. Krökkunum var kynnt saga staðarins og hvernig fornleifafræðingar bera sig að við uppgröft. Því næst fengu þau fornleifaskeiðar og hófu uppgröftinn. Í búðunum sem landverðirnir hafa gert er að finna ýmsa muni eins og leirkerabrot, dýrabein, steina úr vegghleðslum og gamla mynt. Vart mátti á milli sjá hvort foreldrar eða börn skemmtu sér betur. Þá fengu börnin að skrá niður og teikna munina sem þeir fundu að hætti fornleifafræðinga undir leiðsögn landvarða

Fornleifaskóli barnanna verður á hverjum sunnudegi fram yfir verslunarmannahelgi milli 13 og 16.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf