Gengið með Öxará
Um 20 manns gengu fylgdu Öxará að upptökum í
Myrkavatni í þriðju gönguferðinni um
fjalllendi þjóðgarðsins. Gangan var nokkuð löng og verður sú lengsta í þessari gönguferðasyrpu en alls voru lagðir að baki um 19 kílómetrar. Myrkavatn er annað af tveimur vötnum við Leggjarbrjót en fyrir norðan það er Sandvatn en þaðan falla vötn í Brynjudal. Á leiðinni var fjallað um tildrög stofnunar þjóðgarðsins, vatnasvið Þingvallavatns og spáð í flutning Öxarár til forna.
Næsta sunnudag verður farið um Arnarfell sem er við norðausturhorn Þingvallavatns. Mæting er við þjónustumiðstöðina á Leirum kl.11.00 þaðan sem verður farið á upphafsstað. Leiðsögumaður verður Sigurður K. Oddsson þjóðgarðsvörður.

