Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

17.7.2007

Hvað eiga Þingvallavatn og Galapagoseyjar sameiginlegt ?

Líffræði Íslands er um margt mjög sérstök. Þetta stafar ekki síst af því að annars vegar finnast hér fáar tegundir lífvera samanborið við meginlöndin og hins vegar að búsvæði fyrir lífverur eru margbreytileg. Tegundafæðin stafar aðallega af landfræðilegari einangrun eyjarinnar, en fjölbreytni búsvæða stafar ekki hvað síst af eldvirkni og landreki. Þessar sérstöku aðstæður valda því að tegundir lífvera geta nýtt sér fleiri búsvæði og fæðugerðir en ella vegna lítillar samkeppni við aðrar tegundir. Þetta ýtir undir þróun tegundanna. Mismunandi stofnar aðlagast ólíkum búsvæðum og fæðugerðum. Þannig hafa og eru að myndast ólík afbrigði tegunda og jafnvel alveg nýjar tegundir í íslenskri náttúru. Náttúra Íslands er því afar góður vettvangur rannsókna á þróun lífsins og myndun nýrra tegunda. Ísland er sannkallað „leiksvið þróunar“.

Þróun sérstaks lífríkis á Galapagoseyjum við S-Ameríku er af svipuðum toga en það var einmitt þar sem Charles Darwin gerði mikilvægar uppgötvanir sem leiddu til þróunarkenningarinnar. Þar hafði þó „leikritið“ staðið lengur!

Fjölbreytt umhverfi undir vatnsborði Þingvallavatns hefur kallað á myndun afbrigða og nýrra tegunda fiska í vatninu. Þetta hefur verið mikið rannsakað og segja má að vatnið hafi öðlast heimsfrægð vegna þessa. Þar hafa einungis þrjár tegundir fiska numið land eftir ísöld, en aðstæður vegna eldvirkni og landreks mynda afar fjölbreytt og frjósöm búsvæði fyrir fiska. Rannsóknir hafa sýnt að þar hafa á síðustu 10.000 árum þróast fjögur ólík bleikjuafbrigði og einnig afbrigði hornsíla. Þessi afbrigði gætu talist til nýrra tegunda. Rannsóknir á þróun afbrigðanna í vatninu hafa veitt dýpri innsýn í hvernig samspil umhverfis og lífvera leiðir til þróunar fjölbreytileika. Þekking af þessu tagi hjálpar okkur að skilja mikilvægi þess að vernda líffræðilega fjölbreytni á öllum þróunarstigum og að móta skynsamlega stefnu um umgengni og nýtingu.

 Í fimmtudagskvöldgönguferðinni verður sérstöðu vistfræði og jarðfræði Þingvallavatns lýst og sagt frá því hvernig samspil fiskanna við umhverfi sitt hefur leitt til þróunar afbrigða og jafnvel nýrra tegunda í þessari stórkostlegu íslensku náttúru - margt er sameiginlegt með Galapagos! 

Gönguferðin hefst að venju við fræðslumiðstöðina við Hakið kl.20.00 og eru allir velkomnir.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf