Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

24.7.2007

Hreppaflekinn og jarðskorpuhreyfingar

Í síðustu fimmtudagskvöldgöngu sumarsins mun Páll SnókaEinarsson jarðfræðingur fjalla um jarðskorpuhreyfingar á Þingvöllum. Gjárnar á Þingvöllum eru hluti af miklu sprungukerfi og sigdal sem löngum hefur verið talinn marka flekaskil mill Ameríku og Evrasíu.

Nýlegar mælingar sýna þó að þetta er ekki alls kostar rétt. Flekaskilin eru klofin í tvennt og liggur megingreinin austan Heklu. Á milli meginflekanna tveggja er lítill aukafleki, Hreppaflekinn, sem hreyfist sjálfstætt. Þingvallasprungurnar eru á vesturmörkum hans og sýna því aðeins hluta heildarlandreksins.

Í gönguferð um sprungusvæðið verða skoðuð ummerki landreksins, gjár og misgengi. Gönguferðin hefst að venju við fræðslumiðstöðina klukkan 20.00 og verður gengið að Langastíg.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf