Merkingar settar upp við Öxará og Drekkingarhyl
Sagt er að Friðrik 8. konungur Dana hafi fyrstur varpað smápening í Flosagjá þegar hann heimsótti Þingvelli árið 1907. Síðan þá hafa ferðamenn kastað peningum í
Flosagjá sem hefur af þeim sökum einnig fengið nafnið Peningagjá. Flestir ferðamenn láta sér nægja að kasta smámynt í gjánna en á undanförnum árum
hefur aukist nokkuð hjá ferðamönnum að kasta smámynt á fleiri stöðum en í Peningagjá t.d. í Öxará og Drekkingarhyl.
Ekki er þessi hegðan ferðamanna til eftirbreytni og því hafa
verið settar upp merkingar til að koma í veg fyrir þennan sérstaka fylgifisk ferðamennskunnar á Þingvöllum. Merkingar voru settar á brýrnar yfir Öxará og einnig við Drekkingarhyl sem banna athæfið. Að því tilefni var hreinsað upp mikið af glitrandi smámynt úr Öxará og Drekkingarhyl sem gæti ögrað ferðamönnum til frekari peningaeyðslu. Smámyntinni var svo að lokum kastað í Peningagjá.

