Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

3.12.2007

Forn alin og stika á Þingvöllum

Laugardaginn 1.desember var upplýsingaskilti um mælingar til forna afhjúpað við Þingvallakirkju. Á upplýsingaskiltinu er einnig álnastika sambærileg þeirri er notuð var til mælinga hér áður fyrr.

Talið er, að upphaflega hafi alin verið lengdin frá olnboga manns fram á fingurgóma, hin náttúrulega alin. Sú alin gat verið breytileg að lengd og því óhentug í verslunarviðskiptum. Því var kvarði markaður á vegg kirkjunnar á Þingvöllum, 20 álna langur.
Við mælingar á vaðmálum, klæðum o. fl. skyldi nota tveggja álna langar stikur. Skyldi stikan vera tíundi hluti af hinum lögfesta kvarða.

Það voru SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu og Neytendastofa í samstarfi við þjóðgarðinn á Þingvöllum sem útbjuggu skiltið og stikuna en í ár eru 90 ár frá setningu fyrstu laga um löggildingarstofu á Íslandi.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf