Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

23.5.2008

Fluga, spúnn og maðkur í Þingvallavatni

Á fundi Þingvallanefndar þann 21. maí 2008 var ákveðiðVeiðimenn að einungis væri heimilt að nota flugu, spún og maðk sem agn við veiðar í Þingvallavatni, innan þjóðgarðsins á Þingvöllum. Notkun annars agns en hér greinir er alfarið óheimil.

Ennfremur að stangaveiði má aðeins stunda frá landi og notkun hverskonar báta eða flota er bönnuð.

Ástæða þessa er gríðaraukin ásókn í stórurriða undanfarinn misseri og notkun allskyns stærri beitu s.s. makríls, sardína, hrogna og smurefna einsog WD40. 

Með þessari ákvörðun vill Þingvallanefnd stuðla að bættri veiðimenningu við Þingvallavatn, takmarka ásókn í urriðann og vernda fuglalíf í hólmum og skerjum með ströndu vatnsins.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf