Rassgarnarendann merarinnar
Í fyrstu fimmtudagskvöldgöngu þjóðgarðsins á Þingvöllum í sumar mun Guðni Ágústsson alþingismaður fjalla um Þingvelli sem örlagastað í Njálssögu.
Á Þingvöllum hitti Gunnar Hámundarson Hallgerði Höskuldsdóttur fyrir neðan Mosfellingabúð en þeirra hjónaband varð magnþrungið. Hallgerður og Bergþóra létu drepa vinnumenn hvor annarrar þegar Gunnar og Njáll voru á Alþingi á Þingvöllum og voru bætur þar gerðar. Þingvellir
eru oftar en ekki vettvangur málaferla í Njálu. Einn áhrifamesti atburðurinn í því sambandi er bardaginn sem varð eftir málaferlin vegna Njálsbrennu, en þá bárust menn á banaspjót víðsvegar um þingvöllinn.
Gangan hefst klukkan 20:00 fimmtudagskvöldið 12. júní og tekur u.þ.b. tvær klukkustundir. Safnast verður saman við fræðslumiðstöðina og gengið niður Almannagjá að Lögbergi og þaðan að kirkju.

