Þingmannaleiðir og annarra
Þór Vigfússon fyrrv. skólameistari ræðir um þingmannaleiðir og þjóðleiðir í næstu fimmtudagskvöldgöngu 19.júní. Gengið verður inn í Skógarkot en gönguferðin hefst við fræðslumiðstöðina klukkan 20.00. Farið verður niður Almannagjá yfir Efrivelli og um Skógarkotsveg í Skógarkot. Gott er að vera í góðum gönguskóm þar sem gangan tekur rúmar 2 klukkustundir.

