Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

29.6.2008

Málþing um forna þingstaði í Gulaþingi.

Hinn 23. og 24..júní var haldið málþing í Eyvindvik í Gulaþingi í Noregi þar sem saman komu fulltrúar frá fornum þingstöðum við Norður-Atlantshaf. Tilgangurinn með málþinginu var að kynna þessa þingstaði, ræða samstarf milli umsjónarmanna staðanna og hvernig best yrði hlúð að þeim til aukinnar virðingar.


Björn Bjarnason, formaður Þingvallanefndar, ræddi um Þingvelli og áform um fjölþjóðlega skráningu víkingaminja á heimsminjaskrá UNESCO. Íslendingar  hafa tekið að sér forystu þess verkefnis. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hefur ritað ráðherrum landa við Norður-Atlantshaf bréf og boðið til þátttöku í verkefninu, en það kemur í hlut  heimsminjanefndar Íslands að leiða vinnu við það.   Heide Grande Röys, samstarfsráðherra Norðurlanda í ríkisstjórn Noregs, var meðal ræðumanna á málþinginu  og lýsti eindregnum stuðningi norsku ríkisstjórnarinnar við hið sameiginlega víkingaverkefni og þá ætlan, að hefja hina fornu þingstaði til vegs og virðingar.
Sigurður K.Oddsson þjóðgarðsvörður og Einar Á.E.Sæmundsen fræðslufulltrúi kynntu starf þjóðgarðsins á Þingvöllum.

Á ráðstefnunni voru fulltrúar frá nokkrum stöðum, þar sem talið er að þing hafi verið háð á víkingatímanum.  Þingvellir eru  þekktasti þingstaðurinn og hinn eini á heimsminjaskrá.  Fulltrúar á málþinginu komu auk Íslands  frá Orkneyjum, Færeyjum, frá eyjunni Mön í Írlandshafi, Skotlandi og Grænlandi fyrir utan Norðmenn, sem héldu ráðstefnuna í fögru umhverfi Gulaþings.  Fulltrúi hvers staðar kynnti aðstæður á honum og ætt um stöðu rannsókna eða annað, sem þótti til fróðleiks. Þá var flutt erindi um þróun ferðaþjónustu með tilliti til áhuga ferðamanna á menningu og sögu.     Í Skotlandi er Dingwall þekkt örnefni á tveimur stöðum og á eyjunni Mön eru lög enn sögð við hátíðlega athöfn hvert sumar á stað sem heitir Tynwall.  Í Færeyjum stendur  stjórnarsetur  eyjanna á Tinganesi  þeim stað í Þórshöfn, þar sem þing voru háð um aldir.  Í Orkneyjum eru örnefni sem benda til að þing hafi verið haldin.  Í Brattahlíð á Grænlandi eru  sjáanlegar leifar af  þingstað  norrænna manna. Lög Gulaþings eru sögð fyrirmynd fyrstu laga á Alþingi Íslendinga á Þingvöllum árið 930.   Talið er að Gulaþing hafi verið háð í bænum  Eyvindvik nyrst í sveitarfélaginu Gula.

Í lok málþingsins var samþykkt ályktun þar sem hvatt er til rannsókna, sem tengjast sögu þingstaðanna bæði á sviði fornleifafræði og sagnfræði. Jafnframt er stefnt að því að mynda  tengslanet fornra þingstaða.  Haustið 2009  er stefnt að því, að ræða þessi mál frekar á málþingi á Íslandi.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf