Fundur heimsminjaráðsins í Kanada skráir nýja staði á heimsminjaskrá.
Fundur heimsminjaráðsins stendur nú sem hæst í Quebec í Kanada. Fyrir fundinum liggja fjölmargar umsóknir um skráningu á heimsminjaskránna. Heimsminjaráðið tekur einnig til umfjöllunar þær heimsminjar sem eru á válista og metur aðgerðir og ástand þeirra.
Nú þegar hafa verið skráðar 12 ný svæði og staðir á heimsminjaskrá sem menningarverðmæti þar á meðal fyrsti staður í Saudi-Arabíu. Einnig var ákveðið að Dresden dalurinn verði ekki settur á válistann en lögð áhersla á að stjórnvöld í Dresden hætti við byggingu fjögurra akreina hraðbrautar í gegnum heimsminjasvæðið.
Fundurinn er til 10.júlí og meðal umsókna sem bíða er umsókn Íslands um að Surtsey komist á heimsminjaskrá sem náttúruverðmæti. Umsóknin verður tekin fyrir næstu daga. Hægt er að fylgjast nánar með á heimasíðu heimsminjaskrifstofunnar whc.unesco.org.

