surtsey á heimsminjaskrá
Surtsey hefur verið skráð á heimsminjaskrá UNESCO, en heimsminjaráðið fjallaði um umsókn Íslands á fundi sínum í Quebec í Kanada gær.
Fram kemur í rökstuðningi nefndarinnar að það sem þyki einna merkilegast við eyjuna er að hún hafi verið verndað friðland frá því hún myndaðist í eldgosi á árunum 1963 til 1967. Eyjan sé einstakur staður þar sem vísindamenn geta fylgst með þróun dýra- og plöntulífs.

