Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

9.7.2008

Rolling Stones og Þingvellir

,,Er munur á frelsi rokksins og frelsi víkinganna?

Í fimmtudagskvöldgöngu 10.júlí mun Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður Árnessýslu og gallharður aðdáandi Rolling Stones velta fyrir sér frelsi rokksins og frelsi víkinganna sem stofnuðu Alþingi á Þingvöllum.

Á Þingvöllum gafst betri kostur til að sýna sig og sjá aðra. Þar hittist eitt frægasta par fornaldar, glæsilega klætt líkt og rokkarar og hippar sjöunda áratugarins. Hallgerður og Gunnar voru par síns tíma. Var Hallgerður Lady Jane Gunnars?

Að mati Ólafs Helga er löngunin eftir frelsi það sameinar þá sem efndu til þinghalds á Þingvöllum 930 og þá sem ruddu frekar grófri rokktónlist á sjöunda áratugnum braut.

Ólafur Helgi mun einnig velta fyrir hvort að munur sé á frelsi eftir því hvar það á uppruna sinn? Er frelsi ekki óháð tíma og rúmi, en samt barn síns tíma. Er munur á meintri kvenfyrirlitningu Rolling Stones og atburðum við Drekkingarhyl á tímum Stóradóms. Eða er boðskapur lagsins Under My Thumb óháður tíma og rúmi?

Hvað eiga Sympathy For The Devil og Þorgeir Ljósvetningagoði sameiginlegt. Er það pragmatismi, sem gerir mönnum kleift að horfa framhjá viðteknum venjum í þvi skyni að ná árangri?

Gönguferðin hefst klukkan 20.00 við fræðslumiðstöðina við Hakið og verður gengið um þingstaðinn forna. 



Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf