Ekkert aldurstakmark á tjaldsvæðum
Á tjaldsvæðum í þjóðgarðinum á Þingvöllum er ekkert aldurstakmark en börn og unglingar undir 18 ára verða að vera með foreldrum sínum eða forráðamönnum. Einnig mega þau gista ef þau hafa skriflegt leyfi frá þeim sem vísað er fram í þjónustumiðstöðinni áður en tjaldað er.
Ölvun veldur ónæði og spillir friði, ölvað fólk á öllum aldri getur vænst þess að verða vikið af svæðinu.
Á tjaldsvæðunum skal vera kominn á næturró á miðnætti og er því fylgt vel eftir en næturvaktir landvarða hafa eftirlit með tjaldsvæðum.

