Herstöðin á Þingvöllum
Í síðustu fimmtudagskvöldgöngu sumarsins mun Einar
Á.E.Sæmundsen fræðslufulltrúi þjóðgarðsins fjalla um Þingvelli í síðari heimsstyrjöldinni. Hann rekur sögu bandaríska hermannsins Charlie Frame sem dvaldi á Þingvöllum í bækistöðinni Camp Cornell og fylgdi síðar eftir innrás bandamanna inn í Þýskaland.
Gönguferðin hefst stundvíslega klukkan 20:00 við fræðslumiðstöðina. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.

