Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

9.10.2008

Urriðadans í Öxará 18.október

Laugardaginn 18.október verður Jóhannes Sturlaugsson Urriði í vari á milli steinalíffræðingur hjá rannsóknarfyrirtækinu Laxfiskum ehf með kynningu á rannsóknum sínum á stórurriðanum í Þingvallavatni.

Jóhannes mun skýra rannsóknir sínar og og verða meðal annars lifandi risaurriðar til sýnis. Jóhannes hefur stundað rannsóknir á urriðanum í Öxará og Þingvallavatni undanfarin ár. Urriðinn fer að sjást í Öxará í september en þar hrygnir hann allt fram í desember. Með þeim rannsóknum hafa fengist miklar og ítarlegar upplýsingar um atferli urriðans í Þingvallavatni.
Jóhannes hefur m.a. staðið sama fiskinn að hrygningu 8 ár í röð í Öxará. Það atferli sýnir glögglega að það skiptir máli Urriðar í sterkum straumiað drepa ekki í óhófi stórurriða í Þingvallavatni
því þannig eru höggvin stór skörð í hrygningarstofninn.

Safnast verður saman á bílastæðinu við Hótel Valhöll kl 14:00 og þaðan gengið upp með Öxará þar sem urriðinn verður skoðaður og síðan gengið í fræðslumiðstöð.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf