Tvær gönguferðir laugardaginn 18.okt. Herstöðin á Þingvöllum og Urriðadans í Öxará.
Laugardaginn 18.október verða tvær skipulagðar gönguferðir í þjóðgarðinum.
Þingvellir í síðari heimsstyrjöldinni verður til umfjöllunar í gönguferð sem hefst klukkan 11.oo við fræðslumiðstöðina. Þar mun Einar
Á.E.Sæmundsen fræðslufulltrúi þjóðgarðsins fjalla um Þingvelli í síðari heimsstyrjöldinni. Hann rekur sögu bandaríska hermannsins Charlie Frame sem dvaldi á Þingvöllum í bækistöðinni Camp Cornell og fylgdi síðar eftir innrás bandamanna inn í Þýskaland. Skoðaðar verða minjar um herstöðina sem enn sjást en fáir vita af.
Gönguferðin hefst við fræðslumiðstöðina klukkan 11:00 og verður gengið um næsta nágrenni fræðslumiðstöðvarinnar. Gönguferðin er í samstarfi við Sögufélag Árnessýslu.
Ferðir stórurriðans um Þingvallavatn og Öxará verður viðfangsefni seinni gönguferðarinnar sem hefst klukkan 14.00 fyrir framan Hótel Valhöll. Jóhannes Sturlaugsson
líffræðingur hjá rannsóknarfyrirtækinu Laxfiskum ehf með kynningu á rannsóknum sínum á stórurriðanum í Þingvallavatni.
Jóhannes mun skýra rannsóknir sínar og og verða meðal annars lifandi risaurriðar til sýnis. Jóhannes hefur m.a. staðið sama fiskinn sem að hrygningu 8 ár í röð í Öxará. Hefur fiskurinn verið skírður Vilhjálmur áttundi.
Safnast verður saman á bílastæðinu við Hótel Valhöll kl. 14:00 og þaðan gengið upp með Öxará þar sem urriðinn verður skoðaður og síðan gengið í fræðslumiðstöð.
Ókeypis aðgangur er í báðar gönguferðirnar og allir eru velkomnir

