Opnunartímar og upplýsingar um færð
Fræðslumiðstöðin við Hakið er góður upphafsstaður gönguferðar um þingstaðinn forna. Frá 1.nóvember til 1.apríl er fræðslumiðstöðin opin frá 09.00 til 17:00 laugardaga og sunnudaga.
Þjónustumiðstöðin á Leirum er opin í janúar og febrúar frá 10.00-16.00 föstudaga laugardaga og sunnudaga.
Góð regla er að athuga með færð og veður þar sem skjótt skipast veður í lofti um vetur. Vegur 365 um Gjábakka til Laugarvatns oft nefndur Lyngdalsheiði er lokaður yfir veturinn og því verða gestir að keyra veg 36 niður í Grímsnes og fara þaðan inn á veg 35 Biskupstungnabraut til að heimsækja Geysi og Gullfoss.

