Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

31.3.2009

Fræðsluerindi um Ófeig Jónsson málara frá Heiðarbæ

Fimmtudaginn 2. apríl verður fjórði og síðasti LAngistígurfræðslufundur Sögufélags Árnesinga á þessum vetri. Þá mun Þóra Kristjánsdóttir fræðimaður á Þjóðminjasafni Íslands fjalla um Ófeig Jónsson (1770-1843) málara frá Heiðarbæ í Þingvallasveit.

Þóra hefur stundað rannsóknir á íslenskri myndlist á 16., 17. og 18. öld um árabil og hefur m.a. ritað bókina Mynd á þili um það efni.

Altaristaflan í Þingvallakirkju eftir Ófeig Jónsson
Fundurinn verður haldinn í Fræðslumiðstöðinni á Þingvöllum (rétt við útsýnisskífuna á Hakinu þar sem gengið er niður í Almannagjá) og hefst kl. 20:30. Hann er öllum opinn og kaffiveitingar verða seldar á staðnum.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf