Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

9.6.2009

Alþingi á dögum Árna Magnússonar í fyrstu fimmtudagskvöldgöngu sumarsins 11.júni

Í fyrstu fimmtudagskvöldgöngu sumarsins 11.júní mun Már Jónsson sagnfræðingur fjalla um Þingvelli á dögum Árna Magnússonar.

Árni Magnússon, prófessor og handritasafnari (1663-1730), var lengst af búsettur í Kaupmannahöfn en kom ungur á alþingi er hann safnaði handritum fyrir fornfræðing Danakonungs árin 1685 og 1686.

Þegar hann starfaði á Íslandi fyrir konung árin 1702-1712 Lögberg 1kom hann flest sumur á Þingvelli til ráðslags við aðra ráðamenn, einkum Pál Vídalín lögmann. Þaðan sendu þeir skipanir um allt land, meðal annars um töku manntals og kvikfjártals.

Til alþingis komu langflestir málsmetandi menn í landinu, sem og danskir embættismenn. Í spjallinu verður samskiptum þessara manna lýst, sumum skrautlegum, og sagt frá helstu verkefnum lögréttu og lögmanna, sem og skyldum sýslumanna, við dóma og aðrar útréttingar. Þingvellir voru opinber aftökustaður landsins og á þessu árabili voru allmargir sakamenn teknir af lífi, karlar sem konur, einkum fyrir blóðskammarbrot og útburð barna, en líka morð og þjófnað.

Teikning BainesÆðsti dómstóll kirkjunnar var á Þingvöllum í tengslum við alþingi og gekk á ýmsu. Loks notaði Árni Magnússon tækifærið á alþingi og aflaði upplýsinga um handrit og skjöl sem hann ýmist fékk að gjöf eða að láni til afritunar.

Gönguferðin hefst við fræðslumiðstöðina klukkan 20:00 og eru allir velkomnir. Farið verður um þingstaðinn forna og tekur gangan um eina og hálfa klukkustund.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf