Dýrlingur á Ţingvöllum í fimmtudagskvöldgöngu 2.júlí
Í fimmtudagskvöldgöngu 2.júlí mun Ásdís Egilsdóttir prófessor í íslenskum miđaldabókmenntum viđ Íslensku- og menningardeild, Háskóla Íslands fjalla um dýrlinginn Ţorlák. Áriđ 1198, á Pétursmessudag (29. júní), tilkynnti Páll Jónsson Skálholtsbiskup í lögréttu á alţingi ađ heimilt vćri ađ heita á Ţorlák Ţórhallsson (d. 1193) og syngja honum tíđir á dánardegi hans, 23. desember. Áriđ eftir var lesiđ úr jarteinabók Ţorláks, einnig á Ţingvöllum.
Í gönguferđinni verđur sagt frá Skálholtsbiskupnum og dýrlingnum Ţorláki á Ţingvöllum og kraftaverkum sem sagt er ađ ţar hafi gerst fyrir hans tilstilli. Viđ sögu komu einnig ađrir dýrlingar sem einnig tengjast Ţingvöllum, svo sem verndardýrlingar kirkjunnar og dýrlingar sem tengjast sögu Ţorláks.
Ţar má međal annars nefna Martein frá Tours í Frakklandi (d. 397), en Ţorlák biskup dreymdi á alţingi “ađ hann ţóttist ganga frá kirkju ţar á ţinginu og bera höfuđ hins heilaga Martini í fađmi sér.”
Gönguferđin hefst viđ frćđslumiđstöđina klukkan 20.00 og verđur fariđ um ţingstađinn forna og eru allir velkomnir.

