Girndarráð á Þingvöllum. Af ástum og örlögum í Njálu
Í fimmtudagskvöldgöngu 9.júlí mun Bergur Þorgeirsson íslenskufræðingur og forstöðumaður Snorrastofu fjalla um ástir og örlög í Njáls sögu.
Þingvellir eru margoft vettvangur atburða Brennu-Njáls sögu. Markmið Bergs er þó ekki að rekja eða staðsetja atburði sögunnar á þingstaðnum, það hefur áður verið gert, heldur fjalla út frá bókmenntalegu samhengi um nokkur atvik.
Samdráttur Gunnars á Hlíðarenda og Hallgerðar langbrókar á Alþingi verður tekinn fyrir sérstaklega og þar mun Bergur hugleiða hvernig þessi frásagnarþáttur er undirbúinn í sögunni.
Gönguferðin hefst við fræðslumiðstöðina klukkan 20.00 og eru allir velkomnir.

