Andlátsfregn: Sigurður Kristján Oddsson þjóðgarðsvörður á Þingvöllum er látinn, 69 ára að aldri.
Sigurður Kristján Oddsson þjóðgarðsvörður á Þingvöllum er
látinn, 69 ára að aldri. Hann varð bráðkvaddur síðastliðinn laugardag þegar hann var með hópi fólks úr röðum Ferðafélags Akureyrar sem gekk á Herðubreið.
Sigurður fæddist á Hafursá í Fljótsdal 22. janúar 1940, en ólst upp á Akureyri. Foreldrar hans voru hjónin Oddur Kristjánsson húsasmíðameistari og Guðbjörg Kjerúlf. Sigurður var byggingameistari að iðn en nam byggingatæknifræði í Svíþjóð.
Að námi loknu starfaði hann við uppbyggingu álversins í Straumsvík fyrst á vegum sænska verktakafyrirtæksins Siab og var síðar starfsmaður Ísal. Var seinna bæjartæknifræðingur í Hafnarfirði. Eftir það stofnaði hann í félagi við aðra og starfrækti Tækniþjónustuna í Reykjavík.
Árið 1995 var Sigurður ráðinn þjóðgarðsvörður á Þingvöllum og framkvæmdastjóri Þingvallanefndar. Gegndi hann því starfi til dauðadags. Sigurður var mikill útivistarmaður og á yngri árum virkur þátttakandi í skáta- og björgunarsveitarstarfi. Var jafnframt þátttakandi í margvíslegu öðru félagsstarfi og gegndi þar trúnaðarstörfum.
Eftirlifandi kona Sigurðar er Herdís Tómasdóttir, textílhönnuður og bókasafnsfræðingur. Börn þeirra eru þrjú: Tómas Már, verkfræðingur og forstjóri Alcoa á Íslandi, Kristín Vilborg, leirlistakona og kennari og Sigríður Björg myndlistarmaður.

