Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

2.9.2009

Þjóðgarðurinn í evrópuverkefni um forna þingstaði.

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum er meðal 8 aðila af stóru verkefni sem hefur verið samþykkt af Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins (NPP). Meginmarkmið Norðurslóðaáætlunar 2007 – 2013 er að efla atvinnu- efnahags-  og félagslega samvinnu svæða og landa á norðurslóðum með samstarfsverkefnum yfir landamæri á milli einstaklinga, fyrirtækja og stofnana.  

 

Markmið með verkefninu er að kynna sögu þingstaða frá víkingatímanum.  Aðilar að verkefninu eru frá Skotlandi, Orkneyjum, Hjaltlandseyjum, Færeyjum, Noregi og eyjunni Mön.  Nafn verkefnisins er: The THING Project - Thing Site International Networking Group og er heildarverkefnaáætlunin upp á tæplega 1. milljón evra.   Grunnhugmynd verkefnisins er að efla og auka þekkingu á sögu þingstaða, hvernig hægt er að kynna hana og hvernig megi efla ferðaþjónustu tengda þessum stöðum.  Verkefnið byggir á þeim þingstöðum sem kunnir eru frá víkingatímanum og eru dreifðir um þau landssvæði sem víkingar námu og byggðu. 

 

Í Skotlandi er Dingwall þekkt örnefni á tveimur stöðum og á eyjunni Mön í Írlandshafi eru lög enn sögð við hátíðlega athöfn hvert sumar á stað sem heitir Tynwall.  Í Færeyjum stendur stjórnarsetur eyjanna á Tinganesi  þeim stað í Þórshöfn, þar sem þing voru háð um aldir.  Í Orkneyjum og Hjaltlandseyjum eru örnefni og sagnir um forna þingstaði.  Lög Gulaþings eru sögð fyrirmynd fyrstu laga á Alþingi Íslendinga á Þingvöllum árið 930.   Talið er að Gulaþing hafi verið í bænum Eyvindvik nyrst í sveitarfélaginu Gulen norðan við Bergen á vesturströnd Noregs.

 

Þingstaðaverkefnið er mjög stórt og opnar á tengingar milli þeirra landa þar sem þingstaðir voru.  Þar fyrir utan opnast miklir möguleikar til að draga fram sögu héraðsþingstaða á Íslandi, kynna þá og þróa fjölbreyttari ferðaþjónustu í tengslum við þá. 

 

Föstudaginn 4.september verður haldin ráðstefna í Hátíðarsal Snorrastofu í Reykholti undir yfirskriftinni: ÞING-THING sites - A shared hidden heritage.  Það er fyrsta ráðstefnan innan þessa verkefnis en í kjölfar hennar munu aðilar verkefnisins halda vinnufund á laugardag og sunnudag. 

 

Á ráðstefnunni munu 8 kunnir fræðimenn fjalla um þingstaði og þinghald til forna út frá mismunandi sjónarhornum.  Fjallað verður um lög og lagasetningu á þjóðveldistímanum, þingstaði í bókmenntum og örnefni tengd þeim.  Einnig verða erindi um fornleifafræði þingstaða og hvernig megi kynna slíkan arf.

Ráðstefna um forna þingstaði við N-Atlantshaf

haldin í Hátíðarsal Snorrastofu í Reykholti 4. september kl.10:00-17:00

Dagskrá:

09:30–10:00            Skráning 

10:00-10:20             Opnunarávarp

Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra

 10:25 -10:55          Written records on the Icelandic Althing.  Gunnar Karlsson, prófessor

11:00 -11:25            From Iðavöllur to Þingvellir.
On the literary function of the þing
Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu

11:30- 12:00            Assembly features and characteristics - is there a ‘model thing site’?          Alexandra Sanmark, fornleifafræðingur

Hádegismatur

13:00 -13:30  Law and legislation in medieval Iceland

Sigurður Líndal, prófessor

13:35 -14:05 From Lawspeaker to Lawbook: Gísli Sigurðsson íslenskufræðingur

14:10- 14:40  Parliament and place-names in Iceland Svavar Sigmundsson íslenskufræðingur

Kaffihlé

15:00- 15:30  Archaeological challenges at assembly sites -Adolf Friðriksson og Garðar Guðmundsson, fornleifafræðingar

15:35-16:05 "Making Archaeology Work at Orkney's Thing sites:  archaeology as rural development 

Dr Sarah Jane Gibbon og Julie Gibson, fornleifafræðingar

16:05- 17:00   Umræður.

Ráðstefnan er haldin á ensku.  Skráningargjald er 5000 kr og innifalinn er hádegisverður og kaffi.  Skráning á netfanginu thingvellir@thingvellir.is fyrir kl: 16.00 fimmtudaginn 3.sept.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf