Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

21.10.2009

Nýtt sáluhlið flutt um Almannagjá að kirkjugarðinum á Þingvöllum

Í tilefni af 150 ára afmæli Þingvallakirkju hafa margvíslegar framkvæmdir verið við kirkjuna. Frá því Ekið niður Kárastaðastígsnemma í vor hafa kennarar og nemendur í Iðnskólanum í Hafnarfirði unnið að nýju sáluhliði inn í kirkjugarðinn á Þingvöllum. Miðvikudaginn 21.október var hliðið flutt austur í kirkjugarðinn á Þingvöllum. Síðasta spölinn að kirkju var hliðið flutt á gamalli vörubifreið sem tengist Alþingisthátíðinni árið 1930 og var veitt leyfi fyrir að aka bifreiðinni gamla veginn niður Almannagjá að Þingvallakirkju. 

Fyrirmyndin að sáluhliðinu er af ljósmynd sem tekin var í kringum 1880 af sáluhliðinu sem þá stóð í kirkjugarðinum.  Hjörleifur Stefánsson arkitekt útbjó vinnuteikningar af hliðinu eftir ljósmyndinni og unnu kennarar og nemendur við Iðnskólann verkið.

Iðnskólinn í Hafnarfirði hefur áður tekið þátt í verkefni semEkið heim að Þingvallabæ tengjast sögu, menningu og atvinnulífi þjóðarinnar m.a. smíðað 64 skildi sem prýddu víkingaskipið Íslending þegar það sigldi vestur um haf, og komið að byggingu Auðunarstofu á Hólum.  Vörubíllinn sem var notaður við flutning sáluhliðsins tengist Alþingishátíðinni á Þingvöllum á þann hátt að fyrsti eigandi hans Jóhannes Reykdal keypti hann og fékk skráðann 4.ágúst 1930 skömmu eftir Alþingishátíðina.  Hann hafði notað aðra eldri vörubifreið í flutninga til og frá Þingvöllum í tengslum við hátíðarhöldin með þeim afleiðingum að vörubíllinn varð ónýtur og ónothæfur eftir og því þurfti hann að endurnýja og fá nýjan vörubíl eftir hátíðina.  Vörubifreiðin hafði oft verið notuð við almenna flutninga austur á Þingvöll en aldrei eftir Sáluhliðið í kirkjugarðlýðveldisstofnunina 1944.

Biskup Íslands Karl Sigurbjörnsson tók  á móti sáluhliðinu ásamt sóknarprestinum á Þingvöllum sr.Kristjáni Val Ingólfssyni.   Eftir að sáluhliðið hafði verið sett á sinn stað og fest rammlega flutti Karl Sigurbjörnsson stutt ávarp í Þingvallakirkju og m.a. þakkaði kennurum og nemendum fyrir þeirra þátt.  

Kirkjugarðaráð hefur annast framkvæmdina í samráði við þjóðgarðinn á Þingvöllum, sóknarnefnd Þingvallakirkju og sóknarprest.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf