Starf framkvæmdastjóra Þingvallanefndar laust til umsóknar
Þingvallanefnd auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra fyrir þjóðgarðinn á Þingvöllum sem jafnframt er þjóðgarðsvörður.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum er á heimsminjaskrá UNESCO og hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu sem verndarsvæði vegna einstaks menningarlandslags. Þjóðgarðurinn er undir stjórn Þingvallanefndar sem hefur m.a. það hlutverk að varðveita ásýnd þjóðgarðsins, viðhalda þar upprunalegu náttúrufari og dýralífi, stuðla að verndun Þingvallavatns og lífríkis þess og hafa eftirlit og umsjón með framkvæmdum innan þjóðgarðsins.
Starf þjóðgarðsvarðar felst í að annast og bera ábyrgð á rekstri þjóðgarðsins á Þingvöllum í umboði Þingvallanefndar. Þjóðgarðsvörður ber ábyrgð á fjárreiðum þjóðgarðsins og annast m.a. ráðningu starfsfólks, gerð fjárhags-, rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir þjóðgarðinn og er tengiliður á milli almennings, lóðarleiguhafa, ábúenda, sveitarfélagsins o.fl. og Þingvallanefndar. Hann hefur eftirlit með innheimtu lóðarleigugjalda og gjalda svo sem vegna tjaldsvæða og veiðileyfa. Þjóðgarðsvörður er ábyrgur fyrir þjónustu við ferðamenn og aðra gesti, sér um og skipuleggur fræðslustarf og viðhald göngustíga. Þjóðgarðsvörður sinnir öðrum verkefnum sem Þingvallanefnd felur honum og falla innan starfssviðs hans skv. reglugerð nr. 848/2005 um þjóðgarðinn á Þingvöllum, verndun hans og meðferð og í samræmi við lög um þjóðgarðinn á Þingvöllum nr. 47/2004.
Eftirfarandi kröfur um menntun, reynslu og þekkingu verða hafðar til viðmiðunar við mat á hæfni umsækjanda og ráðningu í starfið:
- Háskólamenntun sem nýst getur í starfi, framhaldsmenntun er kostur
- Þekkingu á Íslandi, sögu lands og þjóðar, íslensku náttúrufari og íslenskri ferðaþjónustu
- Reynsla af stjórnunarstörfum, almennum rekstri, fjármálastjórn og mannaforráðum
- Þekking á umhverfismálum, náttúrutúlkun og/eða landvörslu er kostur
- Reynsla eða þekking á fræðslu til mismunandi hópa
- Góð íslensku- og enskukunnátta auk Norðurlandamáls, frekari tungumálakunnátta er kostur.
Stefnt er að því að ráða í starfið frá og með áramótum en fyrr ef kostur er. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um starfið.
Skriflegri umsókn með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist til Þingvallanefndar, Austurstræti 8, 150 Reykjavík, eigi síðar en 20. nóvember n.k.
Upplýsingar um starfið veitir Álfheiður Ingadóttir, formaður Þingvallanefndar, netfang alfheiduri@althingi.is, sími 8938866. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin.

