Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

20.11.2009

Smámynt sem fannst við Þingvallakirkju sleginn í nafni Ottós III Þýskalands keisara frá 983-1002

Komið hefur í ljós við greiningu að silfursmámynt sem fannst við uppgröft við suðurvegg Þingvallakirkju í vor var sleginn í nafni Ottós III sem komst til valda í Þýskalandi árið 983.

Anton Holt myntsérfræðingur hjá Seðlabanka Íslands semSmámynt frá tíma Ottó III 983-1002 hefur skoðað myntina staðfestir að myntin var sleginn í nafni Ottós III Þýskalands keisara sem stjórnaði með Aðalheiði ömmu sinni (ekkju Ottós I) þar sem hann var aðeins þriggja ára þegar hann kom til valda 983. Þessi gerð mynta er tímasett nokkuð vítt eða 983-1002 og líkast til slegin í eða við Goslar, en þar höfðu fundist gjöfular silfur námur á tíundu öld.

Myntin fannst fast við kirkjuvegginn í jarðlagi sem hafði Suðurhlið Þingvallakirkjuverið raskað við gerð kirkjugrunnsins eða viðgerð. Myntin telst nokkuð heilleg og vegur 1.29g sem er mjög eðlileg þyngd fyrir pening sem hefur legið í jörðu og tærst nokkuð. Þvermál hans er 17.7mm, peningurinn ber alls 14 merki þess að hafa verið gæða prófaður með stungum eða ískurði til að sannprófa silfur innihald hans.

Áður hafa komið fram brot af norskum myntum en í þetta sinn þýskur peningur. Myntfundir frá þessum tíma eru sjaldgæfir hérlendis og merkilegir, en sökum þess fjölda sem sleginn var á sínum tíma eru myntir af Ottó/Aðalheiðar sláttunni nokkuð tíðfundnir þegar myntir finnast á annað borð.

Sem dæmi má nefna að Gaulverjabæjarsjóðurinn sem fannst 1930 samanstóð af um 360 myntum þar af eru 86 eintök af Ottó/Aðalheiðarsláttum.Smámynt frá tíma Ottó III 983-1002
Einn þeirra sex peninga sem fundust að Ketu í Skagafirði er mjög áþekkur þessum pening, en peningurinn er nokkuð skörðóttur og vantar því á hann.
Kristján Eldjárn fann einn slíkan pening við göngu í Þjórsárdal 1965, sá peningur er mjög slitinn öðru meginn og því ekki hægt að týpu greina hann að öðru leiti en að vera af Otto/ Aðalheiðar sláttunni.

Margrét Hrönn Hallmundsdóttir fornleifafræðingur stýrði rannsókninni við Þingvallakirkju sem fram fór vegna framkvæmda í tilefni 150 ára afmælis kirkjunnar. Skýrsla um rannsóknina verður tilbúin vorið 2010.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf