Ótraustur ís á Þingvallavatni
Lögreglan í Árnessýslu varar fólk við því að fara út á ísinn á
Þingvallavatni. Ísinn er mjög ótraustur enda hafi vatnið fyrst lagt í nótt. Bændur við vatnið hafa séð börn og fullorðna á ísnum og óttast á fólk falli ofan í kalt Þingvallavatnið. Víða með ströndu Þingvallavatns eru vakir og sprungur og geta þær leynst undir snjóskán.

