Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

9.1.2010

Ólafur Örn Haraldsson nýr þjóðgarðsvörður á Þingvöllum

Á fundi sínum í gær, 8. janúar, samþykkti Þingvallanefnd einróma að ráða Ólaf Örn Haraldsson, landfræðing og Ólafur Örn Haraldssonfyrrverandi alþingismann framkvæmdastjóra nefndarinnar og þjóðgarðsvörð á Þingvöllum.

Ólafur Örn Haraldsson er forseti Ferðafélags Íslands og lauk um s.l. áramót störfum sem verkefnisstjóri þjónustumiðstöðvar vegna jarðskjálfta á Suðurlandi og jarðskjálftasjóðs. Hann var alþingismaður 1994-2003 og formaður umhverfisnefndar þingsins í sex ár.

Ólafur Örn lauk BA-námi í sagnfræði frá Háskóla Íslands 1971, BSc-námi í landafræði og jarðfræði frá HÍ 1972 og meistaragráðu frá Háskólanum í Sussex á Englandi í skipulagsfræðum. Hann hefur sinnt mörgum trúnaðarstörfum og verkefnum á vegum opinberra aðila og félagasamtaka og ritað fjölda greina, aðallega um ferðalög og umhverfismál, auk ferðabóka og ferðalýsinga.

Þingvallanefnd býður Ólaf Örn velkominn til starfa um leið og umsækjendum sem voru 78 talsins er þakkað fyrir þann áhuga sem þeir sýndu starfinu og fyrir fjölmargar góðar hugmyndir sem þeir færðu fram í umsóknum sínum og viðtölum.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf