Fyrirlestur um uppgröft við þingvallakirkju
Laugardaginn 8.maí mun Félag íslenskra fornleifafræðinga gangast fyrir ráðstefnu um björgunar- og framkvæmdatengdar fornleifarannsóknir í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við safnið og Fornleifavernd ríkisins.
Björgunaruppgreftir eru orðnir stór hluti þeirra verkefna sem fornleifafræðingar fást við. Þar eru forsendur hins vegar allt aðrar en við rannsóknaruppgrefti þar sem fræðimenn velja sér uppgraftarstaði eftir rannsóknaráhuga. Fjallað verður um helstu niðurstöður slíkra uppgrafta frá síðustu árum (2007-2009) en þó er markmiðið fyrst og fremst að skapa umræðu um björgunaruppgrefti, framkvæmd þeirra, umgjörð, rannsóknaspurningar og ekki síst hvað verður um upplýsingarnar sem safnast. Ráðstefnan er öllum opin.
Meðal fyrirlesara verður Margrét Hallmundardóttir
fornleifafræðingur sem fjallar um fornleifauppgröft við Þingvallakirkju í fyrra í tengslum við framkvæmdir vegna afmælis kirkjunnar. Mikið magn af gripum kom komið fram við rannsóknina og þeirra merkastur er innsiglishringur úr gulli sem fannst milli hellna fyrir framan kirkjuna. Einnig kom í ljós eldstæði, stoðarholur og veggjaleifar í uppgreftinum. Ljóst er að um afar merkilegar minjar er að ræða.
Dagskrá
13:00 Þór Hjaltalín: Björgunarrannsóknir og þjónusturannsóknir. Hugleiðing um stjórnsýsluna.
13.20 Margrét Hallmundsdóttir: Uppgröftur vegna framkvæmda við Þingvallakirkju
13:40 Lilja Björk Pálsdóttir: Fornt býli í Kelduhverfi. Framkvæmdarannsókn
14:00 Guðný Zöega: Fornleifakannanir vegna vegaframkvæmda í Hamarsfirði og Svarfaðardal.
14:20 Ragnheiður Traustadóttir: Kolkuós
14:40 – 15:00 KAFFI
15:00 Oscar Aldred: Excavation, urban development and its dirty little secrets: an archaeology of Reykjavík‘s waterfront
15:20 Vala Garðarsdóttir: Björgunaruppgröftur á Alþingisreitnum; upphaf og framvinda.
15:40 Oddgeir Hansson: Vaktaralóðin og ýmsar smærri athuganir í miðbæ Reykjavíkur.
16:00 Gavin Lucas: Personal reflections on contract archaeology
16:20 – 16:45 Umræður og ráðstefnulok

