Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

21.5.2010

Skólahópar á Þingvöllum

Á hverju vori koma fjölmargir skólahópar í heimsókn til Nemendur úr Álftanesskóla við LögbergÞingvalla. Undanfarin ár hefur starfsfólk þjóðgarðsins
tekið á móti nemendum með skipulögðum hætti og kynnt þeim sögu og náttúru Þingvalla.

Móttökur eru bókaðar á klukkustundarfresti frá klukkan 09.00 þær vikur sem mest er um að vera. Farið er fyrst í fræðslumiðstöðina þar sem notuð er margmiðlun til að kynna helstu atriði í sögu og náttúru Þingvalla áður en gengið er niður Almannagjá að Lögbergi. Á leiðinni er fjallað um jarðfræði og sögu staðarins. Móttökunum lýkur við búðarústir í Almannagjá þar sem fjallað er um mannlíf á þingi.

Þessar móttökur eru skólum að kostnaðarlausu en hægt er að bóka þær á netfanginu thingvellir@thingvellir.is og fá nánari upplýsingar í síma 482 2660.




Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf