Kvöldgöngur hefjast - gönguferðir á þriðjudagskvöldum og fimmtudagskvöldum í sumar.
Í sumar verður boðið upp á nýjar kvöldgöngur á þriðjudagskvöldum í júní og júlí og hefjast þær þriðjudagskvöldið 8.júní. Í þeim gönguferðum verður sjónum beint að náttúru Þingvalla og mismunandi fræðimenn fjalla um fræði og áhugasvið sín.
Þriðjudagskvöldgöngurnar hefjast allar klukkan 20.00 og taka um 2.klst en upphafstaðir eru breytilegir og koma þeir fram í auglýsingu með hverri göngu. Betra er að vera vel skóaður og búinn til göngu á ójöfnum stígum. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.
Fimmtudagskvöldgöngur þjóðgarðsins á Þingvöllum hefjast 10.júní næstkomandi og verða á hverju fimmtudagskvöldi í júní og júlí. Gönguferðirnar hafa alltaf verið mjög vinsælar og fjölmargir fræðimenn fjallað um Þingvelli. Að venju verða efnistök fjölbreytt en allar gönguferðirnar fjalla beint og óbeint um Þingvelli.
Fimmtudagskvöldgöngurnar hefjast allar við fræðslumiðstöðina klukkan 20.00 og er gengið um þingstaðinn forna og taka þær um 2 klst. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.
Nánari upplýsingar um dagskrá má finna hér.

